 New York Baby ;)
|
 |
Sunday, May 08, 2005
ÆÆ aumingja bloggið mitt er að deyja..enginn nennir að skoða það lengur og ég nenni ekki að skrifa á það lengur :(
Ýkt skemmtilegt djamm í gær, kíkti í partý í vesturbæinn með mega skemmtilegu fólki og svo niður í bæ. Hitti fullt af fólki í bænum sem ég hef ekki séð endalaust lengi, alltaf gaman :)
Ég ætlaði svona aðalega að láta ykkur vita af nýju myndasíðunni minni
http://tinnatt.myphotoalbum.com/
laaaaater :)
Posted at 10:26 am by tinnatt
Permalink
Monday, May 02, 2005
ohh ætlaði að vera rosa dugleg að blogga og var búin að skrifa fullt og svo auðvita tókst mér að klúðra þessu einhvernveginn svo allt sem ég var búin að skrifa datt út...glötuð í blogginu alveg :(
Er að fara í bíó með Boggu og Þóru á The Interpreter.
Gleðilegt sumar.....eða ekki
Posted at 11:30 am by tinnatt
Permalink
Monday, April 11, 2005
New York myndirnar komnar inn
Þá er helgin búin og vinnan tekin við. Þetta var svaka fín helgi, föstudagurinn var tekinn frekar róelga með bíóferð og smá kaffihúsastemmingu á Ara. Á laugardaginn var svo haldið NY reunion heima hjá Röggu, pizza, drykkjuleikir og strákarnir hennar Röggu frá LA, geggjað gaman fyrir utan þetta skítaveður sem er alltaf á þessu landi, alveg vesen að fara niður í bæ komin með kvef og leiðndi. Á sunnudaginn var svo vinnugrillsdjamm hjá Kristni og Önnu, svaka stuð.
Ohh ég er svo lélegur bloggari, er ekkert að nenna að skrifa neitt, en allavega var að setja inn myndirnar frá New York...endilega tékkið á því :)
laaaater
Posted at 03:01 pm by tinnatt
Permalink
Monday, March 28, 2005
Komin heim frá New Yorkinni
Það má segja að þetta hafi verið Sex and the City ferð með meiru!!!
Ferðasagan er svona:
Ég sótti Boggu í vinnuna og við brunuðum út á flugvöll, voða gaman, kíktum í fríhöfnina og fengum okkur að borða...voða klassískt. Svo byrjaði gamanið í flugvélinni á leiðinni út þvílík læti en þar sáum við sætasta strák sem við höfum séð sem sat fyrir aftan Boggu :) svo þegar líða tók á seinni hluta flugferðarinna kemur Björk leikona og spyr hvort við séum Íslendinagar, en hún var að fara halda sýningu á Sellofon í NY daginn eftir og við fengum semsagt frítt á hana.
Svo lendum við og jesús hvað gæjinn í vegabréfskoðuninni var leiðinlegur, var með endalausan dónaskap og svo vissi ég ekki hvert ég átti að fara þegar hann tók vegabréfið mitt og skoðaði það...svo spurði hann ,,hvar vinnuru,, og ég eitthvað eins og algjör bjáni, ,,á bílaleigu,, ,,á hvaða bílaleigu,, segir hann ,,Hertz,, svo horfir hann illum augum á mig og spyr ,,afhverju hefur komið svona oft hingað á svona stuttum tíma,, ég eitthvað ekki alveg að skilja þessar yfirheyrslur og svara sakleysislega ,,því mamma mín er flugfreyja og ég fer oft með henni yfir helgi,, kemur hann aftur með frekjutóninn ,,hvað færðu þá frítt eða?,, ,,nei mér finnst bara gaman í NY,, svo loksins gaf hann mér stilpil í vegabréfið og hleypti mér í gegn....alveg að hann hefur haldið að ég væri hryðjuverkamaður, frekar fyndið. Svo tókum við leigubíl til Ingu og tókum kvöldinu rólega í ís og TV og fórum snemma að sofa.
Næsta dag var vakna eldsnemma og þotist um í búðunum á Manhattan, ég og Bogga fórum á Planet Hollywood og fengum okkur hádegismat og kíktum svo aðeins meira í búðir. Um kvöldið kíktum við svo á Dillon til að sjá Sellofon með Ingu, Sæma og Önnu en Anna kom þangað beint af flugvellinum. Svo var spjall heima hja Ingu og Eddu en allir voða þreyttir og sofnuðu um 2.
Miðvikudagurinn var sennilega rólegasti dagurinn...drullu ömurlegt veður, það var svo bilað mikil rigning að ég þurfti að kaupa mér nýja skó eftir að hafa hlupið um alla Manhattan í rigningunni. Um kvöldið kíktum við Anna og Bogga svo á Planet Hollywood (soldið góður staður), við pöntuðum crazy eftirrétt, keyptum bara einn svona brownie með ís og rjóma en erum við eitthvað að grínast í stærðinni þar sem við 3 náðu rétt svo að klára helminginn af eftirrétti sem á bara að vera fyrir einn.
Eftir Planet ætluðunm við svo að fara að labba á Time Square en útaf þessu brjálaða veðri sem var þarna kíktum við bara á Starbucks og fengum okkur heitt kaffi...rosa nice.
Á fimmtudeginum byrjaði svo djammið heldur betur, um daginn gerðum við þetta vanalega, borða, kíkja í búðir og svona og reyndar kíktum við líka upp í Empire State, þvílíka röðin þar maður biðum í 2 tíma til að komast upp. En já þar sem við bjuggum hjá mestu gellunum í New York var djammið ekki að klikka. Um kvöldið kíktum við með Röggu, Möggu, Sæma og Eddu út að borða á Tai, kínverskan stað, geggjað flottur og auðvita klikkaði maður ekki á Cosmopolitan :) þegar við vorum búin að borða komu Inga og Edda P. að hitta okkur, en þær kíktu í afmæli. Þaðan lá leið okkar á vinsælasta skemmtistaðinn í NY Marquee (kann ekki skrifa) við gellurnar og Sæmi löbbuðum fram fyrir km langa röð og mjög langa VIP röð á stað þar sem aðeins útvaldir komast inn á, ríkt og frægt fólk og model...en já stelpurnar eru sko með sambönd...við öll undir aldri meira að segja....þetta var truflaður staður, aldrei séð neitt svona held nú samt að klósettið hafi verið merkilegast en það gastu fengið allt asem þig langa´ði í, sleikjó, súkkulaði, sígarettur, hárdót u name it allt ókeypis og talandi um ókeypis þá fengum við allt áfengi frítt þarna inni útaf stelpunum, alveg magnað og svo hitti maður Seth Green þarna inni....alveg ótrúlegt.
Vá ég meika ekki að skrifa meira...seinni parturinn kemur á morgunn :)
Posted at 02:06 pm by tinnatt
Permalink
Monday, March 14, 2005
Sko ég held að það sé eitthvað mikið að tímanum, mars er að verða búinn!!! Mig langar ekki á elliheimili strax, mér líður eins og það sé enþá janúar :( Samt ágætt því nú styttist í sumarið.
Ohh var að reyna að henda inn myndunum af árshátíðinni og ég get það ekki :( pirri pirri pirr, verð að reyna aftur á morgunn eða fá einhvern til að hjálpa mér, er ég auli eða hvað???
Maður átti þessa fínu helgi. Föstudagskvöldið var tekið rólega með familíunni að horfa á idolið og það var líka síðasta kvöldið mitt að passa stóru krúttin hennar systur minnar.
Á laugardaginn kíkti ég svo niðrí bæ með Önnu og Boggu þar sem við ætluðum svo að hitta læknisfræðivini hennar Önnu, það væri nú ekki leiðinlegt að ná sér í einn ríkan lækni...uss ;)
Fyrst var smá hittingur heima hjá Önnu, ég, Bogga, Ásdís og Birna síðan kíktum við í partý í Vesturbænum og þaðan lá leiðin á Kofann, alveg skemmtilegur staður get nú ekki sagt annað. Þar hitti ég svo Jóhönnu og við enduðum tvær á Hressó í fríum bjór hjá honum Steina í Útvarpsfélaginu, meiri steikti gaurinn, kom með þessa æðislega glötuðu pickup línu á okkur sem ég get því miður ekki munað :( en kallinn í lagi, dældi í okkur allt kvöldið enda má vægast sagt að þetta hafi endað illa daginn eftir sófinn og klósettið hennar Jóhönnu fengu sko að finna fyrir því...sorry :( En það bætti náttla sunnudaginn ekkert lítið upp þegar mamma hringdi í mig til að segja mér að ég kæmist til New York, verður ekki leiðinlegt 6 dagar að spóka sig í New Yorkinni með stelpunum :)
En já best að fara koma sér í rúmið búin að vera vinna í allan dag og fór svo beint á 1 og halfs tíma brennslu æfingu, safna kröftum fyrir vinnuna á morgunn.
gúd næt
Posted at 03:06 pm by tinnatt
Permalink
Tuesday, March 08, 2005
Þá er bara kominn mars og þessir ömurlegu mánuðir ársins að verða búnir og bráðurm að koma sumar...jeiiiii!!!
Ég fór á hestbak í fyrsta skipti á ævinni í dag með vinnunni, geggjað gaman nema hvað hesturinn minn var með stæla, var stríðnispæuki og latur, samt algjört krútt.
Ég er líka búin að vera leika svona smá mömmu síðustu vikuna, er að passa fyrir systur mína það er voða fínt en ég held nú samt að ég hugsi mig tvisvar um næst þegar ég fer að hugsa um hvað mig langar mikið í börn. Langar náttla alltaf í börn en maður er soldið bundinn með þessu, hleypur ekkert út þegar maður vill og svona.
Fór á árshátíð í vinnunni um þarsíðustu helgi og það var mjög gaman, Stuðmenn að spila og vá hvað þeir voru góðir...enda var ballið bara búið áður en maður vissi af. Skemmtiatriðin voru nú samt eitthvað skrítin, það voru ekki alveg allir að ná öllu í þeim....en allavega geggjað gaman....ég lofa að henda inn myndunum eins fljótt og ég get, ekki seinna en í næstu viku :)
Úrslitin í idol á föstudaginn, ég í fríi um helgina svo maður verður nú að kíkja eitthvað í miðbæinn á fólkið á laugardaginn....en go Hildur Vala í idolinu
Er að fara að vinna á morgunn og ég held að ég komist ekki til New York :(
Fer þá bara seinna :)
Cya
Posted at 10:59 am by tinnatt
Permalink
Tuesday, February 08, 2005
Langt síðan maður hefur dritað einhverju niður hérna. ÞAð er eitthvað svo lítið alltaf að gerast hérna, eða eiginlega alltaf það sama...vinna, fara í árbæjarþrek, kíkja aðeins í bæinn eða gera eitthvað sniðugt um fríhelgar og svo bara eitthvað létt chill þegar ég á frí í vinnunni.
Ég var að finna mér nýtt plan fyrir næsta vetur, held að ég vinni fram að áramótum og skelli mér svo til Þýskalands í byrjun næsta árs og eyði þar 6 mánuðum í að læra þýsku. Ég get ekkert ákveðið mig hvað mig langar að læra í háskólanum...það er eiginlega ekkert þar sem mig langar að læra. En tungumálakunnátta er ágætis menntun :) Svo verður maður nú að skella sér í háskólann eða eitthvað sambærilegt að læra eitthvað.
Þetta líf er alltof flókið eitthvað þegar maður er búinn með menntaskólann!!!!!
Leiter.....................................
Posted at 07:52 am by tinnatt
Permalink
Thursday, January 20, 2005
Þá eru 2 vikur síðan maður kom á klakann :( Frekar mjög kalt, ég var veik í gær því mér varð svo ógeslega kalt í vinnunni!!! Er semsagt byrjuð að vinna og þetta venjulega líf tekið við.
Langar ekkert lítið mikið að fara aftur heim á Appleton og versla á 3rd street promenade, fara á línuskauta á Venice Beach, kíkja upp í Hollywood og Beverly Hills ohh það er svo endalaust mikið hægt að gera þarna annað en hérna á litla Íslandi. Samt voða gaman að koma heim og sjá alla og fá að sofa með sængina mína!!!
Æi ég veit ekkert hvað ég á að segja ykkur, er að fara vinna alla helgina, tók eitthvað smá djamm síðustu 2 helgar, mjög gaman sérstaklega að horfa á Gunna og Stinna strippa...hehe
Svo er Boran mín í viðgerð og hún átti að vera tilbúin um hádegi svo ég gerði mig til og ætlaði að kíkja í bæinn en þegar ég hringi niðrí Heklu klukkan 1 þá eru þeir ekki byrjaðir á bílnum...ég ekki sáttur, þar sem ég er föst alein í Brekkubænum, mamma í Boston, pabbi að vinna og allir hinir í skólanum eða í vinnunni. Alltaf sama lélega þjónustan í Heklu!!!
Held að þetta sé komið gott af vitleysunni í bili
.....later
Posted at 05:45 am by tinnatt
Permalink
Tuesday, January 04, 2005
Ta er madur bara ad fara leggja af stad heim eftir 11 tima, ekkert sma fljotir ad lida tessir 3 manudir!!!
I dag for eg a posthusid ad senda linuskautana mina til Boston svo mamma geti tekid ta heim fyrir mig, sagdi eg bless vid 3rd street promenade og keypti einar levis gallabuxur i vidbot svo for eg ut ad borda med Valda i kvold a gedveikan fiskistad...eg fekk mer krabba og tad fylgdi blom a disknum lika sem skreyting...rosa saett. Restin af folkinu er i Vegas ad skemmta ser :(
Svo var klarad ad pakka ,,shit,, eg er med svo mikinn farangur ad tad er ekki snidugt!! Eg turfti ad sitja ofan a ferdatoskunum minum til ad geta lokad teim og svo er carrie-on taskan min lika stutfull og eiginlega er hun sko 35 pund...eg aetla rett ad vona ad teir vikti hana ekki tvi eg get allavega ekki lyft henni upp i geymsluholfid i flugvelinni! og svo er tad tolvutaskan sem er lika alveg stutfull af drasli...eg aetla bara rett ad vona ad mer gangi vel ad koma ollu tessu doti til Islands!
Eg er ekki alveg ad nenna ad koma heim, hefdi alveg viljad vera herna miklu lengur, tad verdur samt gaman ad sja alla aftur.
Verd ad fara ad koma mer ad sofa, tarf ad vakna klukkan 5 i fyrramalid og ta tekur vid 17 tima ferdalag heim.
See ya very soon :)
Posted at 10:04 pm by tinnatt
Permalink
Saturday, January 01, 2005
Þá er bara enn og aftur kominn janúar, ekki beint minn uppáhalds mánuður!
Ég fór í Magic Mountain á fimmtudaginn með Gullu, Helga, Sigga og Hrabbý. Þegar við vorum ad fara að kaupa miðana kemur svona 10 ára strákur upp að mér og spyr hvort ég vilji miðana hans, þar sem ég var með debetkort sagðist ég ekki geta keypt þá af honum og þá sagði hann að ég mætti bara eiga þá, þannig að litli gæjinn gaf mer 5 miða svo við fengum öll frítt inn í garðinn sem betur fer þar sem þetta voru soldið hrikalegir rússíbanar þarna að við fórum bara í einn, löbbuðum svo aðein´s um garðinn og fórum svo bara aftur heim. Kostar 50 dollara a manninn þarna inn svo við vorum nokkuð sátt með þetta.
Gamlárskvöld var svo tekið rólega, kíkti upp í Beverly Hills og Melrose með Lovísu, borðaði svo góðan mat og á miðnætti fórum við niður á Marina del Rey bátahöfnina og ströndina að horfa á flugeldasýningu. Alveg fínt bara, Nick frændi bað mig um að koma með sér á einhverja risa tónleika sem eru alltaf haldnir á áramótunum í Downtown LA en var ekki alveg að nenna að fara að týnast á einhverjum 50000 manna tónleikum!
Í kvöld verður svo meira eins og áramótin, matarboð og partý hérna hjá bróður mömmu þar sem allir mæta, kalkúnn og læti í matinn...mmmmm
Ég hlakka til að sjá ykkur þegar ég kem heim :) eftir 4 daga :( en þangað til hafiði það bara gott á nýja árinu ;)
Posted at 04:07 pm by tinnatt
Permalink
|